Hvernig viltu styrkja?
Gleym-mér-ei
Gleym mér ei styrktarfélag er til staðar fyrir þau sem missa á meðgöngu og í/eftir fæðingu. Tilgangur félagsins er að styðja foreldra og fjölskyldur þeirra þegar missir á sér stað og hjálpa til við að varðveita minningu litlu ljósanna. Félagið hefur gefið Minningarkassa til foreldra, útvegað kælivöggur og englaklæði. Einnig heldur félagið utan um fjölda annarra verkefna sem miða að því að styðja foreldra og auka skilning samfélagsins á meðgöngu- og barnsmissi.