

Hvernig viltu styrkja?
Alzheimersamtökin
Með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðili gerir þú okkur kleift að þjónusta einstaklinga með heilabilun og aðstandendur þeirra. Áætlað er að um 5.000 einstaklingar á Íslandi glími við heilabilun og í kringum þau eru allmargir aðstandendur. Það er mikilvægt að þessi hópur hafi greiðan aðgang að upplýsingum, fræðslu, ráðgjöf og stuðningi.
Alzheimersamtökin gæta hagsmuna einstaklinga með heilabilun og aðstandenda þeirra. Þá vinnum við að því að auka skilning stjórnvalda, heilbrigðisstétta og almennings á þeim áskorunum sem einstaklingar með heilabilun og aðstandendur þeirra glíma við frá degi til dags.
Rekstur samtakanna er fjármagnaður af styrkjum og sem mánaðarlegur styrktaraðili gerir þú okkur kleift að sinna þessum hlutverkum okkar.