Hvernig viltu styrkja?

Aflið

Með því að ganga í styrktarsamfélag Aflsins - Samtök fyrir þolendur ofbeldis, leggur þú þitt af mörkum til að styðja við þolendur ofbeldis og aðstandendur þeirra.

Við trúum því að þau sem til okkar leita séu sérfræðingar í eigin lífi og reynslu. Enginn þekkir afleiðingar ofbeldis betur en sá sem hefur verið beittur ofbeldi. Hugmyndafræði Aflsins byggir á áfalla- og þolendamiðaðri þjónustu.

Aflið býður skjólstæðingum sínum viðtöl og ráðgjöf þeim að kostnaðarlausu, starfsemi sem við getum staðið undir með stuðningi frá góðhjörtuðu fólki eins og þér. Við tökum á móti fólki á sex starfsstöðvum á landsbyggðinni en bjóðum einnig upp á fjarviðtöl.